LJÓSBROT is a group of amateur photographers who have been working together since 2003. They have held one joint exhibition and have now collaborated to produce book, which they hope will give the reader “another view of Iceland.”
Baldur Birgisson er fæddur 1. apríl 1954 í Reykjavík. Múrarameistari frá Meistaraskóla Iðnskólans í Reykjavík 1987. Hann hefur starfað við iðngrein sína frá 1975, mest við flísa– og steinlagnir. Er sjálfmenntaður áhugaljósmyndari frá 20 ára aldri. Hefur sótt nokkur námskeið í ljósmyndun og starfað í ýmsum áhugamannafélögum á þeim vettvangi. Baldur hefur tekið þátt í nokkrum ljósmyndasýningum innanlands og átt myndir í tímaritum og kennslubók um ljósmyndun sem gefin var út í Bretlandi 2004. Baldur er búsettur í Mosfellsbæ.